|
16.07.2007 13:20:03 / capricorn
jæja... þá er kominn mánudagur.....ég hata
mánudaga.....þeir eru ógeðslega lengi að liða afþví mahr er að
vinna til 5, öll vinnuvikan er framundan, og alveg að drepast úr
þreytu afþví að mahr sofnaði svo ógó seint...... ég hata
mánudaga, en ég elska harry potter
»
11.07.2007 15:32:56 / capricorn
hvað er þetta Hulda mín.....ég nenni aldrei að
blogga.....sérstaklega ekki þegar ég er í fríi hehe.....annars
er nú barasta minna en mánuður þangað til við förum út!!!! og Það
þýðir að það er minna en mánuður sem ég á eftir í dagvinnu! svo er
ég bara komin í vaktavinnu! sem minnir mig á það að ég er víst að
taka við af einhverjum gústa......og strákarnir á vaktinni spur'u
hvort þeir mættu ekki bara kalla mig gústa.....það væri
einfaldara.......bara fyndið.....
»
26.06.2007 14:32:25 / capricorn
jamms mahr verður nú að spyja
sig hvað sé eiginlega í gangi hérna....var að lesa um gaurinn
sem dó í bretlandi vegna þess áð hann festi fótinn í
niðurfalli, björgunaraðgerðir stóðu yfir í meira en þrjá
tíma!!! en svo náðu þeir ekki að losa hann svo hann drukknaði
bara.....er ekki allt í lagi með þessa breta? heilt
slökkvilið og allir heiladauðir! hefði mín ekki bara dælt í
hann morfíni og annaðhvort mölbrotið löppina til að losa hana
eða bara hreinlega tekið hana af! leiðinlegt en hey gaurinn
væri þó á lífi.....
og svo þetta dæmi með kelluna sem
fékk ekki aðstoð á spítalanum.....hún var alveg að deyja greinilega
ælandi blóði einsog vitleysingur en hjúkrunarkonur og læknar gerðu
ekkert! maðurinn hennar hringdi í neyðarlinuna í örvæntingu en þeir
skildu nú bara ekki afhverju hann var að hringja víst hann var
þegar komin á spítala! stuttu seinna hringir kona sem varð vitni að
þessu bað um að sjúkrabíll kæmi frá öðrum spítala sem gæti sinnt
konunni! gaurinn sem svaraði hjá neyðarlínunni varð bara
reiður og sagði henni að vera ekkert að hringja í neyðarlínuna nema
í neyð! og hana nú!
hvað er eiginlega í gangi? mahr bara
spyr sig....
»
25.06.2007 12:36:08 / capricorn
helgin leið bara rólega.....hreyfði varla á mer rassgatið, fór
samt í sund og í ljós á laugard. en svaf bara allann sunnud.
vaknaði ekki fyrr en um hálf sex, nú styttist í að mahr fari til
útlanda....en það verður samt ugglega engin brúðkaupsveisla, heldur
frekar bara skilnaðarveisla........alveg órtúlegt hvernig lífið er
stundum......
»
22.06.2007 13:13:22 / capricorn
jamms nú fer óðum að styttast í
að ég fari á humarhátið!!! get ekki beðið...alltaf gaman að
hitta dóru og alltaf gaman að detta í það..... annars er mest
lítið að frétta.....Hulda er á Akranesi á
fótboltamóti....verður þar alla helgina.....óskum henni og
haukunum góðs gengis..... hef verið alveg gífurlega löt
þessa vikuna.....ekki gert mikið annað en að mæta í vinnu og
bruna svo beint heim í náttfötin og lesa....búin með báðar
bækurnar eftir Sidney Sheldon.... hann er nottla alveg að
skila sínu einsog vanalega kallinn.... nú er ég byrjuð að
lesa bók sem lofar mjög góðu..... gerist í ástralíu....og er
um 43ja ára gamla konu sem verður ástfangin af 25 ára gömlum
þroskaheftum dreng.....mjög skemmtileg og skrýtin
bók....
jæja hef ekkert meira að segja.. nema
það að það eru nottla sorgartímar hjá mér núna víst að House er
búið.......annars er ég ennþá pirruð útaf þessu viðtali við þessa
truntu frá vogunum sem vill alls ekki fá álverið
þangað......jarmandi eittkað um að allt fuglalíf muni eyðileggjast
og eittkað.....þar sem ég er að vinna í straumsvík get ég fullyrt
það að fuglarnir blómstra hérna!!! og kúka líka ef út i það
er farið.....skil nú ekki alveg kað hún er að baula......þetta fólk
sem hefur aldrei komið hérna inná svæðið og vita ekki neitt um
starfsemina og trúa bara í blindni á hetjurnar sínar í öllum þessum
sólarklúbbum......fara alveg ógeðslega í taugarnar á
mér......endalaust sem fólk nennir að rífa sig útaf einhverju sem
það veit ekkert um! og heldur að það sé að gera svakalegt góðverk
og kemst í sjónvarpið alveg svaka gaman mahr! samt skil ég nú ekki
afhverju alcan er að íhuga að reisa álver á keilisnesi...... alltof
nálægt hafnfirðingar hálfvitunum!
»
18.06.2007 14:21:14 / capricorn
jæja þá er kominn
mánudagur......hata mánudaga. en helgin var annars mjög fín,
partý hjá Huldu á laugardaginn......ég var alveg að meika það
í singstar! gaman að hitta Erlu dís svona einu sinni.....mahr
hittir hana kanski einu sinni á ári eða eittkað.......annars
ekki frá miklu að segja nema kað ég sá gegt sætan strák niðri
bæ mahr......uss kað hann var heitur....sá hlytur að gráta
sig í svefn á hverri nóttu
mahr.......
»
14.06.2007 10:40:33 / capricorn
jamms ég er frekar dreymin þessa
dagana....dreymdi ekkert smá skemmtilegan draum í nótt! alveg
æði..... ætla samt ekkert að fara nánar útí það......annars
er mest lítið að frétta....ég bugaðist í gær og hringdi í
hana Elsu mína......meika ekki að vera ekki með neglur, það
er bara ekki að ganga! þannig að ég fer til hennar á
fimmtudaginn næsta.....verð algjör gella á
humarhátíð!
»
13.06.2007 11:27:42 / capricorn
það er ekkert smá kað ég er
gleymin.....ég blogga eiginlega aldrei....og þegar ég blogga
þá hef ég ekkert að segja! svo las ég bloggið hennar huldu og
hún hefur margt að segja sem ég gæti svo sem drullast til að
segja frá......einsog til dæmis brúðkaupið hjá Lindu og
Bjössa....alveg æðislegt....ógeðslega fallegur kjóll sem
Linda var í....og þá meina ég bara að hann var sjúklega
flottur......hún var alveg einsog prinsessa....enda voru
allar litlu stelpurnar að missa sig þarna.....og hengu alveg
utan í Lindu afþví að hún var prinsessa..... systir hennar
Lindu stóð sig alveg frábærlega sem veislustjóri! kom mér
bara satt að segja á óvart....en hana ætla ég að ráða sem
veislustjóra þegar (ekki ef) ég gifti mig....... svo var ég
nottla á nýliðanámskeiði í gær....það var alveg allt í
lagi.....gaman að fá að prufa að slökkva eld með
slökkvitæki....þá kann mahr það....ef ske kynni að eldur mndi
blossa upp einhversstaðar nálægt mér.......annars er ekki
mikið annað að frétta......er komin með eigin aðgang að
tölvunni í vinnunni svo er búin að vera að dunda mér við að
breyta öllum passwordum......ekki alveg að meika
svandis123......
»
13.06.2007 10:40:27 / capricorn
jamms er alvarlega að hugsa um
að sækja um flutning og fá að fara á vaktirnar hérna í
kerskálanum.....þessi dagvinna er ekki alveg að henta
mér....finnst einsog ég sé alltaf að fá að fara fyrr eða fá
frí hálfan daginn útaf einhverju
veseni....
annars er ekki neitt að frétta nema
það að það styttist í að ég fari austur á humarhátið......get ekki
beðið hlakka alltaf til að hitta hana dóru mína vona bara að ég
sé búin að losna við elsku bílinn minn áður.....meika ekki að keyra
austur á bíl sem pissar bensíni.....eða réttara sagt veskið mitt
meikar það ekki
»
07.06.2007 10:52:48 / capricorn
jamms samkvæmt vinum er þessi
óheppni mín ekki smitandi......að vera hrakfallabálkur getur
ekki smitað en þetta er nú meira..... að hrynja svona niður
einsog ég veit ekki hvað.....varð að fara á slysó og
allt.....tognuð á báðum fótum.....búin að vera heima í tvo
daga og að drepast úr leiðindum!!! þannig að ég fór í vinnu í
dag....þó svo að ég geti ekki gert mikið þá er það skárrra en
að hanga heima......
annars var Linda gæsuð á laugardaginn
síðasta....það tókst bara frábærlega í alla staði og var alveg
frábært! hún var ekkert smá ánægð! enda hélt hún að hún yrði ekki
gæsuð......svo er brúðkaupið núna á laugard.....hlakka
til......
er þetta nóg fyrir þig elsku Hulda
mín?
»
31.05.2007 10:39:21 / capricorn
jamms....pabbi gamli á afmæli í dag.....orðinn 48 ára
gamall kallinn....ótrúlegt kað tíminn líður..... kæmi
mér ekki á óvart ef ég væri að verða fertug á
morgun.......hehe.....
»
30.05.2007 13:05:46 / capricorn
villtist inná
eittkað blogg i gær og oj...... vona að þetta hafi verið djók
sko....einhver gaur að tala um daginn og veginn....hann fór
og keypti sér lampa í ikea og er loksins að lagast af
þessari sveppasýkingu... læknirinn sagði að ég yrði að þvo
mér að neðan......
ég hefði getað
gubbað....kað er fólk að skrifa svona á bloggið sitt? oj
barasta.....þetta er svipað ógó og the untold stories of the
er.........alveg svakalegt....kraftlyftingagaur með graftarkýli á
rasskinninni á stærð við epli!!!! það frussaðist sko alveg út úr
því þegar greyis læknirinn skar á það.....
svo var ég nú að
frétta að konan sem er með þetta blogg og er að rakka alcan niður
er ekki alveg heil......og að það var alveg ástæða fyrir því að hún
var rekinn......og að audda gerir eineltisteymið ekki mikið ef
manneskja er að kvarta undan engu! þetta er alveg með
ólíkindum.......
»
29.05.2007 13:19:32 / capricorn
hulda datt inná eittkað blogg i gær sem er vægast sagt
furðulegt......fyrrverandi starfsmaður alcan að kvarta sig hásan
yfir meintri meðferð hérna.......ég bara skil ekkert í þessu.....nú
er ekki langt síðan ég byrjaði að vinna hérna en aldrei hef ég
orðið vör við svona framkomu einsog hún lýsir......ég geld nú bara
að hún sé ekki með fúlle fem þessi blessaða stelpa....sorglegt
svona......er með þvílikar sögur um einelti en þorir ekki að
nafngreina neinn!! hálf hallærislegt.......vil bara ekki hafa svona
rógburð um vinnustaðinn minn! og habðu það
»
23.05.2007 20:02:09 / capricorn
ég er búin að taka þá stórkostlegu ákvörðun að þýða butterfly og
setja hana í minni þýðingu (sem sagt illa þýtt) inná
quizilla.....sjá kað þeim finnst um hana.....þú ert ekki búin að
lifa fyrr en þú hefur lesið butterfly, og þá hef ég líka einhvern
annann en mömmu til að tala um bókina við......ég er
snillingur.....verð ugglega samt ár eða eittkað að þýða þessa
hlussu bók......
»
21.05.2007 18:29:24 / capricorn
jamms mér finnst sumt fólk frekar leiðinlegt....... búin að vera
svaka dugleg að þrífa bílinn minn afþví að einhver ætlaði að skoða
þessa elsku og prufukeyra....en svo kom þetta leiðinlega fólk
ekkert!!!! heyrði heldur ekkert frá gellunni sem ætlaði að hringja
í dag......bömmer
»
Síður: 1 2
|